5 okt. 2010HM kvenna lauk á sunnudagin var með úrslitaleik heimastúlkna í Tékklandi gegn Bandaríkjunum. Leikurinn fór 89:69 og bandaríska liðið fór í gegnum mótið taplaust. Hana Horakova, Tékklandi, var valin Besti leikmaður mótsins og auk hennar í úrvalsliði voru samherji hennar Eva Viteckova, Sancho Lyttle, Spáni, Yelena Leuchanka, Hvíta Rússlandi og Diana Taurasi, Bandaríkjunum. Samhliða HM kvenna var haldin í fyrsta sinn sérstök ráðstefna á vegum FIBA tileinkuð kvennakörfuboltanum og var Guðbjörgu Norðfjörð, varaformanni KKÍ boðið á ráðstefnuna. Um 100 manns frá 50 löndum sóttu ráðstefnuna þar sem verkefni og tækifæri voru rædd fyrir komandi ár. Nýr heimslisti kvenna: 1. Bandaríkin 2. Rússland 3. Ástralía 4. Tékkland 5. Spánn 6. Brasilía 7. Frakkland 8. Kína 9. Kórea 10. Kúba