28 sep. 2010Það var mikil spenna í leik Norrköping Dolphins frá Svíþjóð og Okapi Aalstar frá Belgíu í kvöld í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna en sá seinni fer fram á heimavelli belgíska liðsins. Belgarnir leiddu með mest 22 stiga mun áður en heimamenn náðu að koma til baka. Það var svo Fred Drains sem skoraði sigurkörfuna fyrir Norrköping Dolphins þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Lokatölur voru [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.gameID_7936-8-A-1.compID_BYg5Rb55Jw-G5I3MZ6JB01.season_2011.roundID_7936.teamID_.html[v-]85:84[slod-] Það er því óhætt að segja að Sigmundur Már hafi fengið hörkuleik til að dæma. Seinni leikurinn fer fram í Belgíu 5. október.