15 sep. 2010Körfuboltabúðirnar Basketball without Borders hefjast á morgun í Barcelona á Spáni. Oddi Birni Péturssyni, leikmanni Njarðvíkur, er boðið í búðirnar og er hann mættur til Barcelona. Í ár er leikmönnum fæddum 1993 og síðar boðið en efnileggum leikmanni frá hverju Evrópulandi er boðið. Basketball without Borders er samstarfsverkefni NBA og FIBA en það hófst árið 2001 og en þetta eru níunda búðirnar. Oddur Birnir er ekki fyrsti leikmaður frá Íslandi til að fara í þessar búðir en Haukur Helgi Pálsson fór fyrir tveimur [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=4735[v-]árum[slod-]. Hægt er að lesa um sögu búðanna [v+]http://www.fiba.com/pages/mod/v3/util/downMana.asp?fileID=314[v-]hér[slod-]. KKÍ óskar honum góðs gengis.