13 sep. 2010Haustfundur dómara fór fram um síðastliðna helgi. Dómarar voru þrekprófaðir á föstudegi og svo var haldið á Laugarvatn í býtið á laugardegi þar sem 32 dómarar hlýddu á fyrirlestra, tóku þátt í verkefnavinnu og tóku skriflegt próf. Gríðarlega vel heppnaður fundur og ljóst að dómarar koma vel undan sumri.