13 sep. 2010Þann 23. september eða eftir 10 daga í dag er komið að Heimsmeistaramóti kvenna sem fram fer í Tékklandi. Keppni er með svipuðu sniði og á HM karla, en 16 lið taka þátt í lokakeppninni að þessu sinni og fara tvö lið áfram úr hverjum riðli. Hin liðin sem ekki komast áfram upp úr riðlakeppninni spila um 9.-12. sæti og 13.-16. sæti. Það er ljóst að mótið verður stórskemmtilegt því margar af bestu körfuknattleikskonum heims leika á mótinu sem eru flestar leikmenn með evrópskum liðum sem færa sig svo um set yfir í WNBA á sumrin. Hægt er að lesa allt um keppnina á vef mótsins [v+]http://czechrepublic2010.fiba.com/pages/eng/fe/10/fwc/women/p/index.htmlt [v-]czechrepublic2010.fiba.com[slod-]. Þeir sem áttu aðgang að HM karla á FIBATV geta horft áfram á HM kvenna. Liðin sem taka þátt á HM 2010: A-riðill Ástralía Hvíta Rússland Kanada Kína B-riðill Frakkland Grikkland Senegal Bandaríkin C-riðill Brasilía Kórea Malí Spánn D-riðill Argentína Tékkland Japan Rússland