11 sep. 2010Í kvöld ræðst það hvaða tvö liði munu klást um Heimsmeistaratitilinn á morgun. Fyrri viðureign dagsins er leikur Bandaríkjanna og Litháa kl. 16.00. Kl. 18.30 mætast svo Serbar og Tyrkir. Það má búast við að báðir þessir leikir verði spennandi og ekkert lið á víst sæti í undanúrslitin. Fyrirfram myndu margir veðja á Bandaríkin og Tyrki en Serbar slógu út Spánverja og hafa verið að vaxa og Litháar eru ennþá taplausir og slátruðu Argentínu þannig að allt getur gerst. Rússland lagði Slóveníu fyrr í dag í leik um sæti 7-8 og á morgun leika Spánverjar og Argentína um 5. sætið. Á morgun leika einnig liðin sem tapa í kvöld í undanúrslitunum um 3. sætið og annað kvöld lýkur keppninni með sjálfum úrslitaleiknum.