10 sep. 2010Í gær lauk 8-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins og því ljóst hvaða lið munu mætast í undanúrslitnum. Litháen átti frábæran leik í gær og lagði Argentínu með frábærum leik og sýndu að það eru lið sem vinna leiki en ekki einstaklingar. Litháenska liðið hefur ekki tapað leik á mótinu og má gera ráð fyrir að þeir rífi upp væntingar heimafyrir fyrir leikinn á mótu Bandaríkjunum sem og fyrir EM á næsta ári þar sem þeir verða á heimvelli. Bandaríkin áttu í fullu tréi við Rússland í seinni leik gærdagsins framan af en sigu fram úr á endanum og unnu tíu stiga sigur, 89:79 Leikir dagsins: (Leikið eru um sæti 5-8 í dag og á morgun. Sigurliðin leika um 5. sæti og hin tvö um 7. sætið.) Spánn · Slóvenía Rússland · Argentína Undanúrslitin á morgun Laugardag: Serbía · Tyrkland Bandaríkin · Litháen