9 sep. 2010Bandaríkin · Rússland Fyrri viðureign dagsins er stórleikur Bandaríkjanna og Rússlands. Þessi tvö körfubolta stórveldi hafa marga hildina háð í gegnum tíðina, þá áður þegar Sovétríkin sálugu voru til. Báðar þessar þjóðir hafa sigrað þrisvar sinnum á HM í sögunni og hafa mikla körfuboltasögu. Einn sögulegasti leikur þessara liða var án efa úrslitaleikur Ólympíuleikanna 1972 þar sem ótrúlega umdeilt atvik átti sér stað í lok leiksins. Í stuttu máli varð uppi reikistefna um hvort Sovétríkin hefðu beðið um leikhlé eftir að Bandaríkin komust yfir eftir tvö vítaskot. Síðustu þrjár sekúndurnar voru leiknar í tvígang og í síðara skiptið náðu Sovétríkin að skora og tryggja sér sigur á ótrúlegan hátt. Áður hafði leikurinn verið flautaður af og Bandaríska liðið fagnað sigri. Það varð til þess að reglur voru endurskoðaðar til að koma í veg fyrir svipuð atvik. Bandaríska liðið mætti ekki á veðrlaunaafhendingu leikanna og enginn leikmaður hefur tekið við silfurverðlaunapeningum sínum fyrir annað sætið enn þann dag í dag. Hægt er að skoða málið nánar og [v+]http://en.wikipedia.org/wiki/Basketball_at_the_1972_Summer_Olympics [v-]lesa ýtarlega lýsingu á vef Wikipedia[slod-] og [v+]http://www.youtube.com/watch?v=r_5W0yrk39k&feature=related [v-]sjá myndskeið[slod-] af atvikinu með viðtölum á Youtube. Argentína · Litháen Síðari leikur dagsins eru annar stórleikur körfuknattleiksþjóða en Argentínumenn mæta hinu taplausa og endurnýjaða liði Litháa kl. 18.00. Litháar sem munu leika á heimavelli að ári á EM hafa komið á óvart og eiga möguleika á að fara í undanúrslit. Þeir þurfa fyrst að finna leið til að stöðva þá Luis Scola og Carlos Delfino sem hafa verið óstöðvandi. Hægt er að horfa á leikina á [v+]http://www.fibatv.com/page/Home/0,,12805,00.html [v-]FIBA TV[slod-] og einnig eru þeir sýndir á ýmsum Sport Börum hér á landi en því miður er Ísland eina landið í Evrópu sem sýnir ekki frá HM í Körfubolta.