7 sep. 2010Suður-Ameríku risarnir Argentína og Brasilía áttust við í kvöld í 16-liða úrstlitunum og úr varð frábær leikur sem var hnífjafn allan tímann. Luis Scola, leikmaður Argentínu og Houston Rockets sá til þess að Argentína hafði sigur í lokin 93:89. Scola var hreint magnaður, lék í 39 mínútur af 40, hitti úr 13 af 19 skotum sínum inni í teig og setti niður eina þriggjastigaskotið sem hann tók. Að auki setti hann 8 af 9 vítum niður, tók 9 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Argentína mætir því Litháen í næstu umferð sem unni Kína í dag. Kínverska liðið náði að minnka niður 10 stiga forskot Litháa í 5 stig þegar skammt var eftir af leiknum en Litháen gaf í og sigraði sannfærandi 78:67. Það er því ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum en það eru engir smá leikir framundan og á mikið eftir að ganga á í keppninni áður en við fáum að vita hvaða þjóðir fara í undanúrslit. Þegar svona langt er komið í keppninni eru aðeins bestu liðin eftir í baráttunni um Heimsmeistaratitilinn. Á morgun, miðvikudaginn 8. september: kl. 15.00: Serbía · Spánn kl. 18.00: Slóvenía · Tyrkland Fimmtudagur 9. september: kl. 15.00: Bandaríkin - Rússland kl. 18.00: Litháen - Argentína Undanúrslitin fara svo fram laugardaginn 11. september en á föstudeginum mætast þau lið sem tapa í 8-liða úrslitunum og leika um sæti 5.-8. sæti.