6 sep. 2010ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið júlí – desember 2010. Þjálfarar sem sækja sér menntun erlendis á fyrrgreindu tímabili geta sótt um styrk á þar til gerðum eyðublöðum inn á isi.is sem finna má undir „Efnisveita”. Umsóknarfrestur er til og með 20. september nk. Allar frekari upplýsingar um þjálfarastyrki ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 og á vidar@isi.is Sjá einnig frétt á isi.is