3 sep. 2010Í gær lauk riðlakeppninni á HM og því ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitunum sem hefjast á morgun laugardag. Það verða margir stórleikir og nægir þar að nefna viðureignir Serbíu og Króatíu, Spáns og Grikklands og Tyrkland gegn Frakklandi. Einu liðin sem ekki hafa tapað ennþá leik eru Bandaríkin, Litháen og heimamenn í Tyrkneska liðinu. Argentína tapaði sínum fyrsta leik gegn Serbíu í gær í [v+]http://www.fibatv.com/page/Video/0,,12805~1644743,00.html?tabb=highlights&pnumber=1 [v-]hörku spennandi leik[slod-] og hægt er að skoða helstu tilþrif leiksins í tenglinum hér á undan en þar með höfðu Serbar fyrsta sæti riðilsins af Argentínumönnum. 16-liða úrslit HM 2010: Laugardagur: Serbía-Króatía Spánn-Grikkland Sunnudagur: Slóvenía-Ástralía Tyrkland-Frakkland Mánudagur: Bandaríkin-Angóla Rússland-Nýja Sjáland Þriðjudagur: Litháen-Kína Argentína-Brasilía