25 ágú. 2010Fyrsta dómaranámskeið vetrarins verður haldið föstudaginn 3. september og laugardaginn 4. september. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Bóklega kennslan verður kennt í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á föstudeginum og á laugardagsmorgninum verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á laugardegi. Námskeiðið verður á höfuðborgarsvæðinu. Föstudagur: 18.00-22.00 bóklegt Laugardagur 9.00-13.00 bóklegt og bóklegt próf 14.30-16.00 verklegt próf Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans. [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf[v-]Hér[slod-] má sjá fræðsluáætlun KKÍ. Konur eru hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna. Síðasti skráningardagur er 2. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu. Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, heimilisfang, kennitölu, síma, e-mail og félag.