23 ágú. 2010Í gær áttust við Spánn og Bandaríkin í æfingaleik í Madrid á Spáni fyrir framan 11 þúsund manns en hann var liður í upphitun liðanna fyrir HM sem hefst eftir aðeins 5 daga. Kevin Durant var maður leiksins en hann var stigahæstur á vellinum með 25 stig og átti tvo varin skot í lok leiksins. Fyrst náði hann að breyta þriggjastigaskoti frá Ricky Rubio og svo einnig frá Rudy Fernandez um leið og tíminn rann út. Bandaríkin höfðu því 86:85 sigur. Derrick Rose kom sínu liði yfir 84:82 þegar hálfmínúta var eftir en Spánn komst yfir með körfu og villu í næstu sókn frá Juan Navarro. Kevin Durant keyrði að körfunni hinumegin og fékk tvö víti sem hann setti bæði niður og það urðu lokastigin í leiknum. Hjá Spáni var Juan Navarro með 20 stig og Marc Gasol 17. Enginn leikmaður er úr gullliði Bandaríkjanna frá Ólympíuleikunum 2008 en Bandaríkjamenn binda miklar vonir um að ná árangri á komandi móti. Mike Krzyzewski þjálfari Duke og landsliðsins hefur sagt að vörnin og liðsheild séu aðalmál liðsins í ár en eins og kunnugt er er enginn "stórstjarna" í liðinu að þessu sinni. Kevin Durant við það að ná þeim stalli enda átti hann frábært tímabil í vetur með Oklahoma Thunder og varð stigakóngur í deildinni, sá yngsti í sögunni, aðeins 21 árs gamall með rúmlega 30 stig að meðaltali í leik. Bandaríkjamenn hafa unnið Frakka og Litháa í sínum undirbúning auk Spánverja núna og eiga eftir að leika gegn Grikkjum á miðvikudaginn, en Spánverjar hafa lokið sínum undirbúning þar sem þeir unnu sjö leiki og töpuðu einungis leiknum í gær gegn Bandaríkjunum þannig að það er ljóst að þessi tvö lið fara langt í keppninni. Hægt er að sjá svipmyndir úr leiknum [v+]http://www.youtube.com/watch?v=R-qXXHOh4ic [v-]hérna á YouTube[slod-].