17 ágú. 2010Á föstudag og laugardag fer fram 4-liða hraðmót Fjölnis í Íþróttahúsinu í Dalhúsum. Liðin leika tvo leiki hvort og fá tækifæri til að slípa sig saman á undirbúningstímabilinu. Fjölnir, KR, Grindavík og Njarðvík taka þátt í mótinu en þau lið sem sigra á föstudegi mætast í úrslitum á laugardegi og hin liðin leika gegn hvort öðru. Föstudagur 20. ágúst: 18.00: Fjölnir - KR 20.00: Grindavík - Njarðvík Laugardagur 21. ágúst: 12.00 Leikur um 3. sætið 14.00 Úrslitaleikur mótsins