16 ágú. 2010Georgía og Svartfjallaland sem voru með Íslandi í riðli í B-deildinni á síðustu árum hafa heldur betur byrjað A-deildina með látum. Bæði lið leiða sína riðla með þrjá sigra og eitt tap. Efstu lið fara í lokakeppnina í Litháen í september 2011. Enska liðið er eina taplausa liðið enn sem komið er og hefur Luol Deng leikmaður Chicago Bulls farið á kostum fyrir sitt lið. Hægt er að sjá allt um landsleikina [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.html[v-]hér[slod-] Eins og áður hefur komið fram þá er þetta í síðasta sinn sem leikið verður í A og B deildum en eftir keppnina í Litháen á næsta ári fara öll lið í eina deild svipað og gert er í knattspyrnunni.