13 ágú. 2010Snorri Örn Arnaldsson hefur verið ráðinn þjálfari Afreksbúða KKÍ. Hann tekur við af Bárði Eyþórssyni sem varð að hætta af persónulegum ástæðum. Stjórn KKÍ hefur ráðið Snorra sem eftirmann Bárðar. Snorri hefur mikla reynslu af þjálfun. Snorri er formaður Félags Körfuknattleiksþjálfara á Íslandi og hefur verið þjálfari hjá Fylki '94-'99, Fjölni '99-2005, Breiðablik '05-'09, Álftanesi '09-'10 og nú Stjörnunni frá '09. Snorri hefur einnig verið þjálfari í úrvalsbúðum KKÍ frá 2001 og er í fræðslunefnd KKÍ. Fyrsta æfingahelgi hans verður nú um helgina þegar Afreksbúðahelgi númer 2 fer fram í Ásgarði í Garðabæ.