11 ágú. 2010Nú um helgina fer önnur æfingahelgi afreksbúða fram og verður æft í Ásgarði í Garðabæ. Afreksbúðir eru fyrir krakka fædd 1996. Er þetta annað sumarið í röð sem þetta verkefni verkefni er í gangi en það er hugsað til að brúa bilið milli úrvalsbúða og yngri landsliða Íslands. Þjálfarar búðanna hafa valið hópa til æfinga en alls verða þrjár helgar í sumar sem hóparnir koma saman og æfa. Æft verður nú um helgina 14. og 15. ágúst og svo aftur 28. og 29. ágúst. Æfingatímarí Ásgarði um helgina: Strákar: Laugardagur: 11.30-13.30 og 15.30-17.30 Sunnudagur 11.30-13.30 og 15.30-17.30 Stelpur: Laugardagur 09.30-11.30 og 13.30-15.30 Sunnudagur 09.30-11.30 og 13.30-15.30