10 ágú. 2010Kvennaráð körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur og Kostur munu halda hraðmót fyrir meistaraflokka kvenna dagana 1.-3. september þegar Ljósanæturhátíðin er haldin í Reykjanesbæ. Þetta er þriðja árið í röð sem mótið er haldið og er að festa sig í sessi sem árlegur viðburður í undirbúningi hjá meistaraflokkum kvenna fyrir átökin á tímabilinu. · Áætlað er að mótið fari fram dagana 1. – 3. september (miðvikudag – föstudag). · Þátttökugjald er kr. 20.000 kr. á hvert lið. · Leiktími verður 4*8 mín. og klukka stoppuð í vítum og á síðustu mínútunni í hverjum leikhluta. · Líklegast tveir riðlar með fjórum eða fimm liðum í hvorum riðli. Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður H. Ólafsson, Formaður kvennaráðs kkd. UMFN í síma: 858-6020 og á netfanginu shol@kefairport.is