8 ágú. 2010Nú þegar 20 dagar eru í fyrsta leik þá er hægt að stytta tímann fram að móti og kynna sér liðin sem leika á heimsmeistaramótinu í Tyrklandi. Á vef [v+]http://www.fibatv.com/page/Video/0,,12805~1556990,00.html [v-]FIBA TV[slod-] er hægt að skoða myndbönd um hvert lið sem verður á HM og þar eru svipmyndir úr leikjum liðanna og helstu leikmenn kynntir. Argentína eru um þessar mundir í efsta sæti heimslistans frá FIBA. Eftirfarandi lið skipa efstu sætin: 1. Argentína 2. Bandaríkin 3. Spánn 4. Grikkland 5. Serbía Beinar útsendingar frá HM: Fyrir þá sem vilja þá er hægt að kaupa áskrift að öllum leikjum mótsins auk aukaefnis á 25 evrur sem eru um 3.900 kr. Sjá nánar á [v+]https://secure-fibatv.premiumtv.co.uk/page/secure/loginOrBuy/0,,12805,00.html?target=http://www.fibatv.com/page/Live/0,,12805,00.html%3F&schemeAndHost=http://www.fibatv.com [v-]vef FIBA TV[slod-].