4 ágú. 2010FIBA dómararnir Sigmundur Már og Björgvin eru nýkomnir heim frá Andorra þar sem þeir dæmdu í C-deild U16 ára drengja og stúlkna. Mótið stóð yfir í um viku þar sem sex leikdagar voru á dagskrá en þeir dæmdu báðir alla dagana, sex leiki alls. Sigmundur dæmdi meðal annars með frakka og spánverja sem báðir eru að fara til Tyrklands að dæma á komandi heimsmeistaramóti. Miguel Betancor yfirmaður dómaramála FIBA Europe kom á mótið og fylgdist með og var með stuttan fyrirlestur fyrir þá dómara sem voru á mótinu og fengu okkar menn góða dóma og tilsagnir eftir sína leiki. Næstu verkefni eru um næstu helgi en þá mun Sigmundur dæma í A-deild kvenna í Evrópukeppninni en þar verða þær Hollensku sem léku með Íslandi í riðli í fyrra á heimavelli að leika gegn Króatíu. Þar verður Sigmundur aðaldómari og verður með tvo aðstoðardómara með sér í væntanlegum hörkuleik. Björgvin dæmir í B-deild kvenna leik Svíþjóðar og Slóveníu, en lið Slóveníu lék einnig með okkar stelpum í riðli í fyrra.