2 ágú. 2010Úrslitakeppni U-18 ára landsliða karla fór fram í Litháen síðustu 12 daga og endaði með leikjum um sæti í gær. Mikið aðsókn hefur verið á leikina og svo fór að allt fór úr á hvolf í Litháen um helgina þegar ljóst var að heimamenn höfðu unnið Serbíu í undanúrslitum og myndu mæta Rússum í úrslitaleik. Í gærmorgun safnaðist saman mikill hópur manna fyrir utan Siemens höllina í Vilnius, höfuðborg Litháen til að verða sér út um miða. Miðar seldust upp og þurftu margir frá að hverfa. Samtals voru um 13.000 áhorfendur á leik Litháen og Rússlands sem er nýtt aðsóknarmet á leik í keppni yngri landsliða. Það kemur kannski engum á óvart að það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi. Lokatölur voru 90:61 Það var svo Ólafur Rafnsson forseti FIBA Europe sem afhenti fyrirliða Litháen bikarinn að lokum við gríðarleg fagnaðarlæti heimamanna í stúkunni. Hægt er að lesa meira um mótið [v+]http://www.fibaeurope-u18men.com/en/[v-]hér[slod-] Þess má svo til gamans geta að Eurobasket karla 2011 sem er úrslitakeppni Evrópukeppni landsliða, fer fram í Litháen í september 2011. Miðað við atganginn um helgina væri sjálfsagt hægt að selja alla miða á keppnina strax í dag.