1 ágú. 2010Körfuknattleiksdeildir Grindavíkur, Keflavíkur og Njarðvíkur halda annað árið í röð á Ljósanæturhátíðinni Reykjanescup. Í fyrra sigraði Snæfell á mótinu og þeir hafa möguleika á að verja titilinn í ár. Auk suðunesjaliðanna og Snæfells taka ÍR og Fjölnir þátt. Leikjadagskráin er eftirfarandi en þau lið sem eru efst eftir tvo leiki spila til úrslita en einnig er leikið um 3. sæti og 5. sæti. Leikjaplanið Fimmtudagur 2. sept. í Grindavík kl. 17.00 Grindavík - Fjölnir kl. 19.00 Njarðvík- Snæfell kl. 21.00 Keflavík - ÍR Föstudagur 3. sept. í Keflavík Kl. 17.00 Keflavík - Njarðvík Kl. 19.00 Snæfell - Fjölnir Kl. 21.00 Grindavík - ÍR Sunnudagur 5. sept. í Njarðvík Kl. 14.00 leikur um 5 sætið KL 16.00 leikur um 3 sætið Kl. 18.00 Úrslitaleikur