29 júl. 2010Í dag hefst 13. Unglingalandsmót UMFÍ með keppni í körfuknattleik. Landsmótið fer fram í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Útlit er fyrir að þetta verði fjölmennasta unglingalandsmót frá upphafi. Síðasta landsmót fór fram á Sauðárkróki í fyrra og voru þátttakendur 1500 og heildargestafjöldi um 10-12 þúsund. Mótin þar áður voru þátttakendur um 1000 talsins. Keppt verður í aldursflokkum drengja og stúlkna 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Leikið er eftir hefðbundnum leikreglum en leiktími er 2x8 mínútur og í elsta flokknum er leikið 4 gegn 4. Meðal þátttakenda eru margir leikmenn úr yngri landsliðum íslands sem léku í sumar á NM og í Danmörku á móti U15 en lista yfir þátttakendur og dagskrá mótsins er hægt að finna á vef [v+]http://umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/keppni/korfubolti/ [v-]UMFÍ hérna[slod-].