21 júl. 2010Mynd: Úr leik Þristarinns gegn Tornado á Klambratúni. Tornado hafði sigur 21-16. Sumardeildin er götuboltamót KKÍ fyrir 18 ára og eldri sem fram fer í sumar. Leikið er í tveimur riðlum og verður úrslitakeppni haldin í ágúst. Nú hafa flest liðin leikið nokkra leiki og skilað inn úrslitum. Það hefur viðrað frábærlega undanfarið á landinu og hafa liðin nýtt sér það og leikið körfubolta í sólinni. Hægt er að sjá úrslit leikjanna sem hafa farið fram [v+]http://www.kki.is/sumardeildin.asp [v-]hérna[slod-] auk annara upplýsinga um deildina. bein slóð: www.kki.is/sumardeildin.asp