17 jún. 2010Það fór eins og flestir körfuboltaáhugamenn vonuðust eftir, hreinn úrslitaleikur sker úr um það hvort það verður Boston Celtics sem vinnur sinn annan titil á síðustu þremur árum eða Los Angeles Lakers sinn annan í röð. Það er ekki oft sem það hefur gerst á síðustu árum að það komi til oddaleiks í lokaúrslitum en þetta verður í 4. skiptið á síðustu 25 árum sem það gerist. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum hér á landi enda eiga þessi tvö lið marga aðdáendur. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsending klukkan 00:50.