16 jún. 2010Á dögunum var endurvakið [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6325[v-]Félag körfuknattleiksþjálfara á Íslandi[slod-]. Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar var að útbúa heimasíðu fyrir félagið og er hún nú komin í loftið - [v+]http://fkisida.wordpress.com[v-]http://fkisida.wordpress.com[slod-]. Margt forvitnilegt er á heimasíðunni og má m.a. sjá fyrstu fundargerð nýrrar stjórnar. Endurvakning FKÍ er afar mikilvægt skref í þróun körfuknattleiks á Íslandi og því mikið fagnaðarefni að starfsemi félagsins er farin af stað. Heimasíða fyrir félagið er aðeins fyrsta skrefið í því að efla félagið.