12 jún. 2010Í undanúrslitum mættu strákarnir liði Berlínarúrvalsins frá Þýskalandi þar sem okkar strákar höfðu betur 88:66 Byrjunin hjá liðinu var mjög sterk, liðið leiddi 12-7 og 18-9 en þeir þýsku voru mjög aggressivir í sínum leik og brutu mjög á íslenska liðinu sem sótti stíft á vörn þeirra. Maciek átti stórleik og endaði með 27 stig en hann var öflugur að keyra á stóru varnarmenn Berlínarliðsins. Staðan eftir fyrsta leikhluta 23-13. Íslensku strákarnir léku öfluga svæðisvörn sem þjóðverjinn átti í vandræðum með, og héldu þeir þýska liðinu í tveim stigum fyrstu sex mínúturnar í öðrum leikhluta. Allir leikmenn léku af krafti og var magnað að sjá eljuna í liðinu. Strákarnir voru sjálfum sér verstir í að nýta vítaskot í fyrri hálfleik en þeir leiddu engu að síður 41-27 í hálfleik. Í þriðja leikhluta gerðu Berlínarstrákar áhlaup sem strákarnir náðu að svara, þeir bættu við forystuna með Maciek í ham, Oddur og Dagur Kár voru að skora vel en frákastabarátta liðsins var í lagi. Staðan eftir þriðja leikhluta 61-44. Það má segja að það hafi bókstaflega rignt í danmörku í dag en bæði úti var vott veður, en í byrjun fjórða leikhluta settu íslensku strákarnir fimm þrista á þremur mínútum og staðan orðinn skyndilega 50-80. Þeir þýsku voru sterkari á lokakaflanum en lokatölur 88-66 og sæti í úrslitaleiknum tryggt. Englendingar sigruðu Skota með sex stigum í hinum undanúrslitaleiknum og það verða því Íslendingar og Englendingar sem leika til úrslita á morgun klukkan 15:00 að dönskum tíma. Stigaskor íslenska liðsins: Maciek Baginski 27 (lék ekkert í fjórða leikhluta), Oddur Rúnar Kristjánsson og Dagur Kár Jónsson 16 hvor, Tómas Orri Grétarsson 8, Cristopher Cannon 7, Eysteinn Ævarsson 5, Andrés Kristleifsson og Erlendur Ágúst Stefánsson 3 hvor, Þorsteinn Eyfjörð 2. Aron Freyr Kristjánsson og Hugi Hólm náðu ekki að skora.