12 jún. 2010U-15 ára landslið drengja hóf leik klukkan 9 í morgun eða 7 á íslenskum tíma. Leikið var við landslið Hollands. Drengirnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Hollendinga í hörkuleik 75:73. Það er því ljóst að liðið endar í efsta sæti í sínum riðli. U-15 ára landslið stúlkna leikur klukkan 14:30 ( 12:30 íslenskur tími ) við Noreg og svo gegn Dönum klukkan 20:30 ( 18:30 íslenskur tími ) Drengirnir leika klukkan 16:30 ( 14:30 íslenskur tími ) við liðið sem endar í öðru sæti í B-riðli mótsins. Meira um leikina og atburði dagsins síðar í dag.