11 jún. 2010Á þessari stundu ( Komið hefur í ljós smá seinkun á flugi liðanna, mótið gæti færst eitthvað til vegna þessa, við munum setja inn nýja leiktíma þegar það verður vitað seinna í dag ) eru U15 ára lið Íslands á leið sinni til Danmerkur þar sem liðin munu taka þátt í Copenhagen Invitational. Þá fóru flestir þeirra sem eru í sigurliði U16 á NM í ár en þeir unnu mótið í fyrra þar sem þeir töpuðu ekki leik. Þá fór bara drengjalið frá Íslandi, en núna fer stúlknalið U15 einnig á mótið. Stelpurnar leika í riðli með U15 liðum Hollands, Danmerkur og Noregi Austur. Strákarnir eru í riðli með U15 liðum Skota, Hollands og öðru af tveim liðum Dana í þessum aldursflokki. U15 drengja: Andrés Kristleifsson · Höttur Aron Freyr Kristjánsson · Keflavík Christopher Sófus Cannon · Stjarnan Dagur Kár Jónsson · Stjarnan Erlendur Ágúst Stefánsson · Þór Þorlákshöfn Eysteinn Bjarni Ævarsson · Höttur Hugi Hólm Guðbjörnsson · KR Maciej Baginski · Njarðvík Oddur Rúnar Kristjánsson · KR Tómas Orri Grétarsson · Njarðvík Þorgeir Blöndal · KR Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson · KR Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson U15 stúlkna: Ingunn Embla Kristínardóttir · Keflavík Katrín Fríða Jóhannsdóttir · Keflavík Sandra Lind Þrastardóttir · Keflavík Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík Thelma Hrund Tryggvadóttir · Keflavík Aníta Kristmundsdóttir Carter · Njarðvík Guðlaug Björt Júlíusdóttir · Njarðvík Hallveig Jónsdóttir · Breiðablik Sóllilja Bjarnadóttir · Breiðablik Birta Björk Árnadóttir · Breiðablik Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukum Sara Diljá Sigurðardóttir · Valur Þjálfari: Margrét Sturlaugsdóttir Fararstjóri í ferðinni er Ragnar Matthías Sigurðsson og sjúkraþjálfari er Anna Pála Magnúsdóttir. [v+]http://www.cph-invitational.dk/[v-]Heimasíða mótsins[slod-] [v+]http://www.cph-invitational.dk/kollage/download/Kampprogram.pdf[v-]Leikjadagskrá[slod-]