11 jún. 2010Nú um helgina fer fyrsta æfingahelgi afreksbúða fram og verður æft í Ásgarði í Garðabæ. Afreksbúðir eru fyrir krakka fædd 1996. Er þetta annað sumarið í röð sem þetta verkefni verkefni er í gangi en það er hugsað til að brúa bilið milli úrvalsbúða og yngri landsliða Íslands. Tómas Holton stjórnar stelpunum og Bárður Eyþórsson strákunum og hafa þeir valið hópa til æfinga en alls verða þrjár helgar í sumar sem hóparnir koma saman og æfa. Næstu helgar verða 14. og 15. ágúst annars vegar og 28. og 29. ágúst hinsvegar. Æfingatímar: Strákar: Laugardagur: 09.30-11.30 og 13.30-15.30 Sunnudagur 09.30-11.30 og 13.30-15.30 Stelpur: Laugardagur 11.30-13.30 og 15.30-17.30 Sunnudagur 11.30-13.30 og 15.30-17.30