11 jún. 2010Í dag þegar HM í fótbolta hefst eru 78 dagar þar til fyrsta uppkastið verður framkvæmt á heimsmeistaramótinu í körfubolta sem fram fer í Tyrklandi en mótið hefst 28. ágúst. Riðlaskiptingin varð eftirfarandi en í sviga er nafn borgarinnar þar sem leikið er. Argentína eru í efsta sæti styrkleikalista FIBA en Ólympíumeistarar Bandaríkjanna lentu í riðli með sterkum liðum eins og Slóveníu og Brasilíu sem og Túnismönnum og Írönum sem er áhugavert. Heims- og Evrópumeistarar Spánverja leika í riðli með Frakklandi, Litháen, Líbanon og Kanada. Riðlaskiptingin veðrur eftirfarandi: A-riðill: (Kayseri) Serbía, Argentína, Ástralía, Jordanía, Þýskaland, Angóla. B-riðill: (Istanbúl) Króatia, Brazilía, Túnis, Slóvenía, Íran, Bandaríkin. C-riðill: (Ankara) Kína, Tyrkland, Rússland, Puerto Ríkó, Fílabeinsströndin, Grikkland. D-riðill: (Izmir) Litháen, Líbanon, Frakkland, Spánn, Kanada, Nýja Sjáland. [v+]http://turkey2010.fiba.com/eng[v-]turkey2010.fiba.com[slod-]