8 jún. 2010Einvígi Los Angeles Lakers og Boston Celtics færir sig til Boston þegar liðin mætast klukkan 01:00 eftir miðnætti í kvöld. Staðan er 1-1 eftir að Boston náði að stela einum í Los Angeles eins og sagt er en fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Staples Center heimavelli Lakers. Næstu þrír leikir fara fram í Boston og má segja að liðið sem engum eða í það minnsta fáum datt í hug að ætti möguleika á því að vera í þessum sporum nú sé í dauðafæri á því að vinna titilinn. Það er hins vegar eitthvað sem segir manni að Kobe Bryant og félagar hans séu ekki á leiðinni að tapa fjórum leikjum í röð, einum á heimavelli og svo næstu þremur sem fara fram í Boston. Stemningin er að magnast og von er á svakalegum leik í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport