7 jún. 2010Það var allt annað Boston lið sem mætti til leiks í gær og drifnir áfram af dugnaði og krafti frá Rajon Rondo og skotsýningu Ray Allen náði Boston að jafna. Næstu þrír leikir verða í Boston svo það má segja að þeir grænklæddu séu allt í einu í dauðafæri á því að vinna enn einn NBA meistaratitilinn sem ekki mörgum fannst líklegt fyrir nokkrum vikum síðan. Heimasíðan sér það samt ekki gerast að Los Angeles tapi þremur leikjum í röð þrátt fyrir að það sé á erfiðum útivelli. Þessi sería er rétt að byrja og má mikið vera ef hún fer ekki alla leið í oddaleik. Næsti leikur er klukkan 01:00 eftir miðnætti annað kvöld.