3 jún. 2010Um næstu helgi er komið að fyrri helgi Úrvalsbúða KKÍ en búðirnar fara fram laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. júní. Úrvalshópar eru undanfari yngri landsliða Íslands þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir öll helstu tækniatriði íþróttarinnar. Úrvalsbúðir eru fyrir krakka á aldrinum 11-13 ára. Í ár eru það drengir og stúlkur sem eru fædd 1999, 1998 og 1997 Dagskrá búðanna 5. - 6. júní er eftirfarandi: Dalhús, Grafarvogi - Strákar 1999 · 09:00 - 11:00 1998 · 11:30 - 13:30 1997 · 14:30 - 16:30 Ingi Þór Steinþórsson er búðarstjóri hjá strákunum en honum til aðstoðar verða Bárður Eyþórsson, Finnur Stefánsson, Örvar Kristjánsson, Pétur Guðmundsson, Snorri Örn Arnaldsson og unglingalandsliðsmennirnir Ægir Þór Steinarsson og Tómas Tómasson Ásvellir, Hafnarfirði - Stelpur 1999 · 09:00 - 11:00 1998 · 11:30 - 13:30 1997 · 14:30 - 16:30 Margrét Sturlaugsdóttir er búðarstjóri hjá stelpunum og henni til aðstoðar verða Jón Halldór Eðvaldsson, Falur Harðarson, Erla Reynisdóttir, Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir og unglingalandsliðsstúlkurnar Rannveig Ólafsdóttir og Auður Ólafsdóttir Seinni helgi úrvalsbúða verður 14. - 15. ágúst.