1 jún. 2010Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar FIBA Europe fór fram nú um nýliðna helgi undir stjórn Ólafs Rafnssonar fv. formanns KKÍ og nýkjörnum forseta sambandsins. Nokkur veigamikil mál voru á dagskrá og má þar helst nefna verkaskiptingu stjórnar, skipan fasta nefnda og breytingu á keppnisfyrirkomulagi A-landsliða karla. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var skipaður í fjárhagsnefnd FIBA Europe og Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ í unglinganefnd en nefndirnar eru skipaðar til næstu fjögurra ára eða til 2014 eins og starfstímabil stjórnarinnar er. Stjórnin ákvað á fundinum að gera breytingar á keppnisfyrirkomulagi A-landsliðs karla en mikil umræða hefur verið um þetta keppnisfyrirkomulag undanfarin ár. Ákveðið var að fjölga liðum sem taka þátt í úrslitum EM úr 16 þjóðum í 24 og samhliða því að leggja niður A og B deildirnar. Undankeppnin fyrir úrslit EM verður því með svipuðu sniði og t.d. hjá knattspyrnunni þar sem styrkleikaröðuð riðlakeppni er spiluð. Þannig er að mörgu leyti flóknu kerfi sem keppt hefur eftir undanfarin ár lagt niður. Fyrsta úrslitakeppni EM þar sem verða 24 þjóðir fer fram árið 2013 en næsta úrslitakeppni EM fer fram árið 2011 í Litháen og því í síðasta sinn þá sem einugis verða 16 þjóðir. Nýja keppnisfyrirkomulagið verður því tekið í notkun árið 2012 þegar fyrstu leikirnir verða spilaðir í riðlakeppninni. Mótanefnd FIBA Europe er falið að koma með hugmyndir á næstu mánuðum að frekari útfærslu, t.d. hvort keppnin fari fram í 3-4 "gluggum" yfir árið eða hvort allir leikir verði spilaðir í ágústmánuði eins og verið hefur hjá A-landsliðunum, hversu margir riðlar verða og hversu mörg sæti í hverjum riðili gefi þáttökurétt í úrslitum EM. Þessi breyting er eitt af þeim málefnum sem fulltrúar Íslands hafa unnið að á vettvangi FIBA Europe undanfarin ár.