
20 maí 2010Í hádeginu í dag var móttaka sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Körfuknattleikssamband Íslands boðuðu til heiðurs forseta ÍSÍ Ólafi Rafnssyni, nýkjörnum forseta FIBA Europe. Meðal þeirra sem mættu voru forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og íþróttamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ásamt mörgum formönnum sérsambanda og körfuknattleiksdeilda.
