18 maí 2010
Í morgun kom til landsins hópur Íslands sem var á norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð. Upphaflega átti hópurinn að koma í gær en ekki var hægt að fljúga frá Stokkhólmi í gærdag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, tók á móti hópnum í morgun upp í Leifsstöð og afhenti norðurlandameisturunum í U16 drengja blóm. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var með létta tölu en athöfnin stóð ekki lengi yfir enda lenti vél ferðalanganna kl. 06.15 og því margir spenntir að komast heim og hvíla lúin bein.