16 maí 2010Ísland sendi fjóra dómara á Norðurlandamótið í ár og það er óhætt að segja að þeir hafi staðið sig frábærlega. Þrír þeirra dæmdu úrslitaleiki á mótinu í dag sem er til marks um hversu vel þeir stóðu sig og hversu góðir þeir eru. Sigmundur Már Herbertsson dæmi úrslitaleik U18 karla og Björgvin Rúnarsson dæmdi úrslitaleik U18 kvenna. Davíð K. Hreiðarsson dæmdi úrslitaleik U16 kvenna. Davíð Tómas Tómasson dæmdi svo leiki í dag um 3. sætið.
Myndbrot: [v+]http://karfan.is/karfantv/index/video/204 [v-]Viðtal við Davíð K. Hreiðarsson og svipmyndir frá fjórframlengdum leik á NM sem hann dæmdi[slod-]