15 maí 2010U16 ára lið Íslands hefur tryggt sér sæti í úrslitaleiknum um Norðurlandameistaratitilinn í körfuknattleik eftir sterkan 71-61 sigur á Dönum. Valur Orri Valsson hrökk í gang og setti 22 stig í leiknum, tók 6 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 3 boltum. Frábær leikur hjá kappanum sem hafði ekki fundið fjölina í skotum sínum á mótinu til þessa en í dag var hann sjóðheitur. Ísland mætir Svíþjóð á morgun í leik um Norðurlandameistaratitilinn. Martin Hermannsson opnaði leikinn fyrir Ísland með þriggja stiga körfu, hvað annað? Pilturinn hefur leikið fantavel á Norðurlandamótinu og því við hæfi að hann skyldi hefja þessa orrustu fyrir Íslendinga. Svæðisvörn var dagskipun Íslands frá fyrstu minute og gekk hún vel, Emil Karel jók svo muninn í 6-0 með annarri þriggja stiga körfu áður en Danir komust á blað. Danski teigurinn var ansi þéttur og framan af voru íslensku piltarnir nokkuð hikandi í sínum aðgerðum er þeir réðust á teiginn en áhlaup okkar manna gerðust betri og tíðari. Ísland komst svo í 14-6 áður en Danir tóku leikhlé en þá reif Þorgrímur Kári Emilsson niður sóknarfrákast í danska teignum og skoraði að auki, hans fyrstu verk nýkominn af bekknum fyrir Stefán Karel Torfason. Danir klóruðu þó aðeins í bakkann en Íslendingar leiddu 20-15 að loknum fyrsta leikhluta. Ísland mætti með þrist í upphafi annars leikhluta rétt eins og í þeim fyrsta en þar var Emil Karel Einarsson að verki og staðan 23-15. Danir voru þó aldrei langt undan en Íslendingar höfðu stjórnina í leiknum. Stefán Karel hélt snemma af velli í öðrum leikhluta með þrjár villur en þá tók Valur Orri Valsson góðan kipp og setti tvo erfiða þrista fyrir Ísland og breytti stöðunni í 36-25. Báðir þristar Vals komu þegar skotklukkan var við það að renna út en Danir þéttu vörn sína til muna síðustu mínúturnar fyrir hálfleik. Örlítið einbeitingarleysi gerði vart um sig á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks í íslensku vörninni og Danir þökkuðu pent fyrir sig með tveimur þriggja stiga körfum og staðan því 39-33 Íslandi í vil þegar liðin gengu til hálfleiks. Valur Orri Valsson var kominn með 12 stig í íslenska liðinu í hálfleik og Emil Karel Einarsson varm eð 10 stig. Þá átti Maciej Baginski sterka spretti að vanda með 4 stig og 4 fráköst. Íslendingar opnuðu þriðja leikhluta með þriggja stiga körfu og þar var Valur Orri Valsson að verki og staðan 42-35 Íslandi í vil. Valur var að finna fjölina í dag eftir nokkuð dræma skotnýtingu á mótinu til þessa. Næstu Íslandssóknir voru reyndar óreiðukenndar og mörg hver skotin voru erfið og sum þeirra rötuðu vart á körfuspjaldið. Í stöðunni 42-39 kom 9-0 rispa hjá Íslendingum og strákarnir slitu sig aftur frá og nú 51-39 eftir þrist frá Martin Hermannssyni. Peter Möller var þó að reynast Íslendingum erfiður og raðaði niður þristum og hélt Dönum á floti en staðan 56-47 Íslandi í vil fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Danir léku góða vörn í upphafi fjórða leikhluta og píndu íslensku bakverðina í að gera nokkrar vitleysur og náðu að minnka muninn í 60-56 því feilar Íslands úti á velli smituðu inn í varnarleikinn og Danir gerðu nokkrar auðveldar körfur. Lítið var skorað í fjórða leikhluta en besti maður leiksins, Valur Orri Valsson, gerði út um leikinn þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Valur setti þá niður fjórða og síðasta þristinn sinn í leiknum, úr jafnvægi, og staðan orðin 67-56. Danir áttu ekki svör eftir þetta og lokatölur reyndust 71-61 Íslendingum í vil.
Valur Orri var besti maður Íslands í sterkri liðsheild með 22 stig í leiknum, tók 6 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 3 boltum. Martin Hermannsson átti enn einn stórleikinn með 17 stig, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta, næstur kom Emil Karel Einarsson með 12 stig og 7 fráköst. Maciej Baginski gerði 8 stig í leiknum og tók 6 fráköst og þá kom íslenska dýnamítið, Sigurður Dagur Sturluson, með kraft af bekknum og setti 7 stig og tók 4 fráköst. Hægt er að sjá myndir [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/436 [v-]úr leiknum gegn Danmörku hérna[slod-] Mynbrotið úr leiknum er hægt að nálgast [v+]http://karfan.is/karfantv/index/video/201 [v-]hérna[slod-].