
15 maí 2010Byrjunarliðið Íslands: Björn, Oddur, Kristófer, Haukur og Illugi. U18 ára lið karla spilaði sinn síðasta leik í riðlakeppninni núna rétt í þessu en leikurinn hófst kl. 11.00 að íslenskum tíma. Strákarnir okkar höfðu unnið Norðmenn í gær og freistuðu þess að fylgja því eftir og vinna Finna. Leikurinn byrjaði vel og var hraður, íslenska liðið sótti hratt upp völlinn og Finnarnir sömuleiðis þó ekki væri mikið skorað. Staðan eftir fjórar mínútur var 4:3 fyrir Ísland. Finnar höfðu skorað úr þriggjastiga skoti og bætu öðrum þrist við þegar Haukur Helgi svaraði fyrir Ísland og Kristófer í næstu sókn á eftir. Staðan 8:6 fyrir Ísland og Finnar tóku leikhlé. Ísland hélt áfram að spila fína vörn og keyra hratt upp völlinn. Kristófer skoraði í hraðaupphlaupi eftir góða sendingu langt fram völlinn og Haukur Helgi bætti við körfu og fékk villu að auki í næstu sókn og smellti niður vítinu, staðan 13:8 fyrir Ísland og allt á blússandi siglingu hjá okkar strákum. Finnar setja næstu 5 stig og jafna 13:13 áður en Íslands skorar næstu 6 stig og fer í 19:13. Finnar skora síðustu 2 stig leikhlutans, staðan 19:15 fyrir Ísland. Eftir fyrsta leikhluta var Haukur Helgi komin með 11 stig, Kristófer 6 og Andri 2 fyrir Ísland. Í öðrum leikhluta halda Finnar áfram að skjóta fyrir utan línuna og hitta vel og sækja á körfu Íslands, ná 3-8 áhlaupi og komast yfir 22:23. Þegar leikhlutinn er hálfnaður hafa Finnar náð 6 stiga forskoti, 26:32. Þegar hérna var komið við sögu tognaði einn af þremur dómurum leiksins og því var smá hlé á leiknum á meðan sá sem hljóp í skarðið var að gera sig tilbúinn. Þetta virtist hleypa auknum krafti í okkar menn sem náðu frábærum kafla, og breyttu stöðunni í 39:35 fyrir Ísland þegar ein og hálf mínúta var eftir af fyrri hálfleik en Ísland skoraði körfur af öllum regnbogans litum. Finnar héldu sér inni í leiknum með þristum og staðan í hálfleik jöfn, 41:41, þrátt fyrir að Ísland hafi verið betri aðilin í leikhlutanum.
