14 maí 2010Byrjunarliðið: Bergdís, Sara Mjöll, Heiðrún, Guðbjörg og Rannveig. Noregur byrjaði feiki sterkt en þær komust í 8-0 eftir fyrstu tvær mínútur leiksins. Margrét þjálfari tók því tíma og endurskipulagði leik Íslands. Bergdís setti niður fyrstu stig Íslands úr vítum og staðan var orðin 2-12. Norsku stúlkurnar fengu hvað eftir annað auðveldar körfur inni í teig og þær nýttu færin sín mjög vel. Ísland fór að pressa allan völlinn og það skilaði sér í stolnum bolta undir körfunni og tveimur stigum auk þess sem Rannveig smellti niður þristi og Guðbjörg einnig í næstu sókn. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 14:26, 12 stiga forskot hjá norska liðinu. Staðan 14: 26 eftir fyrsta leikhluta. Íslenska vörnin tók sig tak og fór að stoppa sóknir norska liðsins sem ganga eingöngu út á að skora undir körfunni. Rannveig smellti niður sínum öðrum þristi úr jafn mörgum skotum. Eftir þetta var eins og lok væri á körfu liðsins því ekkert datt niður og aðeins 7 stig upp á töfluna í þessum leikhluta eru til marks um það. Norska liðið er komið með 19 stiga forskot og staðan í hálfleik er 21:40 og Noregur vann leikhlutann 7:14. Íslenska liðið þarf þurfti því að vinna upp 19 stiga mun í seinnihálfleik. Stigahæstar í liði Íslands eru Rannveig og Guðbjörg með 8 og 7 stig. Íslenska liði í heild er með 14 fráköst gegn 29 og 14 tapaða bolta gegn 8. Í upphafi seinni hálfleiks er afnræði er með liðunum fyrstu mínútur leikhlutans en eftir fimm og hálfa mínútu er staðan orðin 26:55 sem er 5:15 í leikhlutanum fyrir Noreg. Ekkert gengur í sókninni hjá íslenska liðinu á meðan norska liðið sækir grimmt og nýtir þau fáu skot utan af velli frábærlega en skora mest inni í teig. Guðbjörg er komin með 13 stig og Rannveig 9 sem gera samtals 22 stig af 33 íslenska liðsins gegn 64 þess norska. Noregur vinnur leikhlutann 12:24. Fjórði leikhluti byrjar vel og Ísland spilar betri vörn en þær gerðu í leikhlutanum á undan. Hinsvegar taka þær norsku öll völd þar sem ekkert gengur né rekur hjá íslenska liðinu. enda tala tölurnar sínu máli. Auður Íris átti frábæra innkomu í leikhlutanum, setti 14 stig af 19 stigum liðsins í leikhlutanum og tók 6 fráköst að auki. Rannveig og Guðbjörg voru góðar framanaf í leiknum en náðu ekki að skora í síðasta leikhlutanum. en aðrar voru langt frá sínu besta í þessum leik. Leikhlutinn fer 19:19 og því 31 stigs munur á liðunum í lokin. Það sem skildi liðin af í dag var barátta og dugnaður norsku stúlknanna, þær voru grimmar, börðust vel og voru óhræddar við að keyra á vörn okkar liðs. Skotnýting Íslands inni í teig var aðeins 18.8% og Noregur tók 22 fleiri fráköst en Ísland. Stelpurnar okkar þurfa að gleyma þessum leik og klára sinn síðast leik með því að eiga góðan leik gegn Dönum seinna í dag.