14 maí 2010Nú er um hálftími í leik hjá strákunum í U16 ára liðinu en þeir eru að fara að etja kappi gegn liði Svía. Staðan er sú að fari þeir með sigur af hólmi eru þeir öryggir í leiknum um gullið, en ef svo skildi fara að leikurin tapist, þá er nánast úrslitaleikur gegn Dönum um að fara í úrslit gegn Svíum. KKÍ og Karfan.is munu gera leiknum ítarleg skil á meðan leik stendur og eftir leik. Einnig styttist í viðtal við Kristófer Acox eftir sigurleik U18 í morgun og viðtal við Friðrik Ragnarsson og Hermann Hauksson en þeir eiga báðir stráka í U16 ára liðinu, þá Elvar Már og Martin. Hálfleikur: Staðan er 32:29 fyrir Ísland og Martin byrjar á því að setja niður þrist! Maceij bætti öðrum við og Martin skoraði úr hraðaupphlaupi, 8-0 áhlaup hjá okkur! Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni á [v+]http://widgets.baskethotel.com/site/?client=sbf#mbt-widget:JTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJjb250YWluZXIlNUQlM0R2aWV3MiUyNnJlcXVlc3QlNUIwJTVEJTVCd2lkZ2V0JTVEJTNENTAwJTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJwYXJhbSU1RCU1QmxlYWd1ZV9saW5rX3Zpc2libGUlNUQlM0QxJTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJwYXJhbSU1RCU1QnRlYW1fbGlua192aXNpYmxlJTVEJTNEMSUyNnJlcXVlc3QlNUIwJTVEJTVCcGFyYW0lNUQlNUJnYW1lX2xpbmtfdmlzaWJsZSU1RCUzRDElMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCcGxheWVyX2xpbmtfdmlzaWJsZSU1RCUzRDElMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCbGVhZ3VlX2xpbmtfdHlwZSU1RCUzRDMlMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCbGVhZ3VlX2xpbmtfaGFuZGxlciU1RCUzRG5hdmlnYXRlTGVhZ3Vl [v-]www.basket.se[slod-]