14 maí 2010Tveir leikir fóru fram á sama tíma hjá U18 ára liðunum núna í morgun og höfðu strákarnir góðan sigur á meðan stelpurnar töpuðu. Loksins, loksins sást í andlitum leikmanna U18 ára karlalandsliðs Íslands sem voru að leggja Norðmenn 76-65 á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins eftir tvo sára tapleiki gegn Dönum og Svíum fyrr á mótinu. Haukur Helgi Pálsson gerði 19 stig og tók 4 fráköst í íslenska liðinu og Oddur Ólafsson var með 14 stig og 5 stolna bolta. Það tók liðin smá tíma að nudda stýrurnar úr augunum því staðan var aðeins 2-2 eftir þriggja mínútna leik. Jafnt var á öllum tölum í fyrsta leikhluta og bæði lið voru svo að segja fjarverandi í sóknarleik sínum en léku þó ágæta vörn. Norðmenn leiddu 14-15 eftir fyrsta leikhluta þar sem Hjalti Valur Þorsteinsson stal boltanum á lokasekúndunum og brotið var á honum í sniðskoti, Hjalti hitti aðeins úr öðru vítinu og því leiddu Norðmenn. Í öðrum leikhluta tóku liðin heldur betur við sér og Íslendingar voru fyrri til, pressuvörn Íslands fór að gefa nokkra bolta og jaxlinn úr Hveragerði, Oddur Ólafsson, dritaði niður þremur þristum á skömmum tíma og Ísland komst í 33-19. Norðmenn tóku þá við keflinu og söxuðu forystu Íslands jafnt og þétt niður og náðu að koma muninum niður í fjögur stig og staðan 38-34 Íslendingum í vil í hálfleik.
Oddur Ólafsson var með 11 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar í hálfleik og honum næstur var Haukur Helgi Pálsson með 10 stig og 3 fráköst.