14 maí 2010Ársþing FIBA Europe hófst í morgun með þingsetningu og ræðu fráfarandi forseta FIBA Europe. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og fyrrum formaður KKÍ er í framboði til forseta FIBA Europe. Við upphaf þingfundar gáfu fulltrúar KKÍ öllum þingfulltrúum gjöf til að kynna enn frekar framboð Ólafs. Vakti gjöfin mikla athygli og ánægju þingfulltrúa en gjöfin samanstóð af hraunmola úr Eyjafjallajökli á árituðm platta. Allir þingfulltrúar hafa orðið varir við afleiðingar gossins í Eyjafjallajökli á undanförnum vikum og þótti mikið til þess koma að fá að gjöf hraunmola sem sérstaklega voru sóttir af þessu tilefni. Kosning til forseta FIBA Europe fer fram á morgun laugardag og ættu úrslit að liggja fyrir um kl. 12 að íslenskum tíma. Í framboði er auk Ólafs, Turgay Demirel forseti tyrkneska körfuknattleikssambandsins og varaforseti FIBA Europe.