13 maí 2010U16 stúlkurnar áttu síðasta leik dagsins hjá íslensku liðinum og þetta var annar leikur þeirra í dag. Það var ekki að sjá á þeim að þær væru þreyttar því stelpurnar spiluðu mjög grimmt og ákveðið í fyrrihálfleik og fram í lok 3. leikhluta þar sem leikurinn var nánast jafn. Þá náði danska liðið yfirhöndinni og stakk af þar sem þær náðu hraðaupphlaupum og fráköstum í sókn sem og þær hittu mjög vel. Það fór þannig að Danir höfðu sigur 55:73 og annað tap liðsins því orðið staðreynd. Lokatölur leiksins gefa ranga mynd af honum því eins og áður segir náðu þær forystunni í restina. Hægt er að sjá myndir [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/431 [v-]úr leiknum gegn Danmörku hérna[slod-]