12 maí 2010Íslenski hópurinn er á leið til Svíþjóðar á Norðurlandamót 2010. Alls fara 48 leikmenn, 5 þjálfarar, 2 sjúkraþjálfarar, 3 fararstjórar, 5 dómarar ásamt íþróttafulltrúa KKÍ sem mun sjá um fréttaflutning á heimasíðunni. Dómarar frá Íslandi eru: Sigmundur Már Herbertsson, Björgvin Rúnarsson, Davíð Hreiðarsson og Davíð Tómasson. Kristinn Óskarsson verður einnig með í för en hann mun sitja fundi með kollegum sínum frá hinum Norðurlöndunum en undanfarin ár hefur samvinna þjóðanna aukist til mikilla muna varðandi fræðslu í dómaramálum. Kristinn Óskarsson hefur verið tilnefndur af KKÍ til FIBA Europe sem yfirleiðbeinandi dómara á Íslandi. Einn leikmaður, Haukur Helgi í U18, kemur frá Bandaríkjunum, þar sem hann er við nám, og heldur svo vestur yfir hafið aftur að móti loknu. Einnig mun Hrafnhildur úr U16 liðinu fara í bekkjarferðalag til Danmerkur á mánudeginum, en annars munu allir ferðast og dvelja saman í Solna á meðan mótið stendur yfir. Það er því ljóst að það verður mikið fjör á Norðurlandamótinu 2010, þar sem framundan eru að minnsta kosti 16 leikir á fjórum dögum, auk úrslita ef til þeirra kemur á sunnudegi og það hefur sýnt sig að þeir hópar sem hafa farið undanfarin ár hafa staðið sig frábærlega, sýnt samheldni á mótinu og verið landi og þjóð til sóma. Áfram Ísland!