12 maí 2010Ísland tapaði naumt 73-66 gegn Finnlandi í fyrsta leik U 18 ára kvennaliðsins á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. Guðbjörg Sverrisdóttir og Sara Mjöll Magnúsdóttir voru stigahæstu leikmenn íslenska liðsins, báðar með 15 stig. Ísland gerði heiðarlega tilraun til að komast nærri Finnum á endasprettinum en hafði ekki árangur sem erindi. Íslenska U 18 ára kvennaliðið fékk óskabyrjun í sínum fyrsta leik er liðið mætti Finnum á NM í Svíþjóð. Ísland komst í 7-0 og þar gerði Sara Mjöll Magnúsdóttir 5 stig á skömmum tíma. Íslendingar voru mun ferskari en Finnar þrátt fyrir að íslenski hópurinn væri svotil nýlentur í Solna. Ísland komst svo í 11-2 áður en Finnar tóku leikhlé. Eftir leikhléið virtust Finnar vaknaðir og skoruðu 7 stig í röð án þess að Ísland næði að svara og leiddu þær finnsku 18-19 að loknum fyrsta leikhluta. Framan af öðrum leikhluta var töluvert fjör, hraði og skemmtileg tilþrif og íslenska liðið náði aftur forystunni, 27-25, með þriggja stiga körfu en Finnar völdu fín skot og nýttu færi sín vel og leiddu því 30-39 í hálfleik. Sara Mjöll Magnúsdóttir var komin með 11 stig og 2 fráköst í íslenska liðinu í hálfleik en næst henni var Árný Sif Gestsdóttir með 8 stig. Varnir beggja liða voru fínar í upphafi síðari hálfleiks og í íslenska liðinu voru þær Heiðrún Kristmundsdóttir og Björg Guðrún Einarsdóttir skæðar sem fremstu menn í pressu. Framan af voru Finnar með um 10 stiga forystu en íslenska liðið náði að minnka muninn í 49-45 þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum. Svæðisvörn Íslands náði að hægja lítið eitt á Finnum en þeir áttu þó lokaorðið og náðu að rífa muninn aftur upp í 10 stig, 47-57 og þannig stóðu leikar fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Sama hvað íslenska liðið reyndi í fjórða leikhluta áttu Finnar ávallt svör, það var ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins sem Ísland fór að nálgast en þá hafði farið of mikið púður úr liðinu og lokatölur reyndust 73-66 Finnum í vil. Þær Guðbjörg Sverrisdóttir og Sara Mjöll Magnúsdóttir voru stigahæstu leikmenn íslenska liðsins, báðar með 15 stig. Árný Sif Gestsdóttir gerði 9 stig og Heiðrún Kristmundsdóttir bætti við 8 stigum. U 18 ára kvennaliðið mætir svo Svíum á morgun kl. 14:30 að íslenskum tíma. [v+]http://karfan.is/karfantv/index/video/191 [v-]Myndbrot úr leiknum og viðtal við Margréti eftir leik[slod-] [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/424 [v-]Myndasafn úr leiknum[slod-]