12 maí 2010Framlengja varð viðureign Íslands og Danmerkur í karlaflokki U18 ára á Norðurlandamótinu í Svíþjóð þar sem Danir reyndust sterkari á endasprettinum. Lokatölur í þessum fyrsta leik íslenska liðsins voru 74-82 Dönum í vil. Haukur Helgi Pálsson fór fyrir íslenska liðinu með 35 stig og 7 fráköst en það dugði ekki til að þessu sinni. Þá var Bárður Eyþórsson að stýra sínum fyrsta landsleik og mátti sætta sig við tap í eldskírninni. Haukur Helgi Pálsson kom Íslendingum í 5-4 með þriggja stiga körfu en hélt svo af velli. Í fyrsta leikhluta var honum reyndar í tvígang skipt út af en leikmaðurinn lenti í Svíþjóð skömmu fyrir leik eftir 20 tíma ferðalag frá Flórída í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nám við Montverde miðskólann. Haukur áttti þó heldur betur eftir að láta að sér kveða í leiknum. Um miðbik fyrsta leikhluta skiptu Íslendingar í svæðisvörn og héldu sig við þann háttinn út fyrri hálfleik. Danir byrjuðu betur í fráköstunum með stærri og þyngri miðherja en íslenska liðið vann á þar sem Kristófer Acox gaf miðherjum Dana ekkert eftir. Íslenska liðið var nokkuð mistækt í fyrsta leikhluta, fengu dæmd á sig skref og voru að tapa boltanum uppi á miðjum velli svo Danir leiddu 15-22 eftir fyrsta leikhluta. Haukur Helgi Pálsson splæsti í fimm stig fyrir Ísland í upphafi annars leikhluta og minnkaði muninn í 20-25 og skömmu síðar náði íslenska liðið að jafna 27-27. Gríðarleg barátta var í leiknum og allt of mikill líkamlegur barningur var leyfður sem á köflum var fátt annað en háskaleikur. Kristófer Acox hélt áfram að láta vel til sín taka en hann og Haukur Helgi voru helstu vítamínssprautur íslenska liðsins í dag. Ísland átti lokaorðin í fyrri hálfleik og leiddi 36-33 í hálfleik. Haukur Helgi Pálsson var með 18 stig í leikhléi og Kristófer Acox var með 8 stig og 6 fráköst. Félagarnir Haukur Helgi og Kristófer Acox buðu upp á glæsilegt samspil í upphafi síðari hálfleiks sem endaði með troðslu hjá Acox yfir tvo af varnarmönnum Dana. Haukur kom svo með tvo þrista í röð og breytti stöðunni í 44-35 Íslandi í vil, strákurinn sjóðandi heitur en Danir hófu þá endurkomu. Danir söxuðu forystuna jafnt og þétt niður og jörðuðu þrist þegar tvær sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta og staðan 53-50 Íslandi í vil fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Danir jöfnuðu fljótt í upphafi fjórða leikhluta með þriggja stiga körfu og staðan 55-55. Jafnt var á öllum tölum í leikhlutanum en á lokasprettinum virtust Danir ætla að síga framúr en þá komu fjögur íslensk stig í röð og staðan 66-66. Næsta sókn Dana endaði með íslensku frákasti og Frónverjar héldu í síðustu sókn leiksins. Haukur Helgi Pálsson hélt boltanum nánast út síðustu sóknina en sá Odd Ólafsson í betri stöðu, Oddur fór upp endalínuna og tók erfitt skot sem geigaði og því varð að framlengja þar sem staðan var 66-66 eftir venjulegan leiktíma. Illugi Auðunsson gerði fyrstu stig framlengingarinnar og kom Íslendingum í 68-66 en þá komu sjö dönsk stig í röð og staðan orðin 68-73 Dönum í vil. Náðarhöggið kom svo þegar 1.16 mín. var til leiksloka en þá smelltu Danir niður þrist og breyttu stöðunni í 70-78. Eftirleikur Dana var auðveldur og lokatölur urðu 74-82 Dönum í vil. Haukur Helgi Pálsson fór mikinn í íslenska liðinu með 35 stig og 7 fráköst en næstur þar á bæ var Kristófer Acox með 14 stig og 7 fráköst. Illugi Auðunsson var svo með 8 stig og 2 fráköst. [v+]http://karfan.is/karfantv/index/video/192 [v-]Myndbrot úr leiknum og viðtal við Bárð eftir leik[slod-] [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/425 [v-]Myndasafn úr leiknum[slod-]