7 maí 2010Úrslitaleikur B-liða er í kvöld kl. 19.30 á Álftanesi. Þar etja kappi Breiðablik-b og Stjarnan-b. Leikurinn átti upphaflega að vera í apríl en var frestað þar sem að kæra barst vegna undanúrslitaleiks Stjörnunnar-b og Vals-b. Aga- og úrskurðarnefnd úrskurðaði að úrslit þess leiks skyldu standa og því fór Stjarnan-b í úrslitaleikinn.