7 maí 2010Fyrirhugaður aukaformannafundur sem átti að vera á morgun laugardag hefur verið afboðaður. Á síðasta formannafundi sem var í mars var ákveðið að boða til aukaformannafundar til þess að ræða mótamál meistaraflokkana. Ákveðið hefur verið að skipa starfshóp sem mun fara yfir þetta mikilvæga mál og því mun fundurinn á morgun ekki fara fram. Næsti formannafundur verður að venju í haust.